samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Hér var vitnað í þrælskemmtilega bíómynd en við dveljum kannski ekki lengur við þá mynd. Það voru fleiri góð atriði í henni sem mætti vel rifja upp. En varðandi þetta hugtak, að eitthvað sé fullfjármagnað, þá held ég að það sé þannig þegar við tölum við fólk í atvinnulífinu, opinbera geiranum eða bara fólk úti á götu, hinn almenna venjulega Íslending, og segjum að við séum með eitthvað sem er fullfjármagnað þá reiknar viðkomandi með því að við annaðhvort eigum peninginn til eða séum búin að taka lán fyrir honum hefðum við ekki átt hann til, þ.e. að peningurinn sé klár. Það er ekki í þessu samhengi. Hér er hann fullfjármagnaður í þeim skilningi að það er búið að ákveða, a.m.k. að mestu leyti, hvaða leið verði farin til að reyna að búa til pening. Samt gat hæstv. ráðherra ekki svarað því hér í dag hversu mikinn pening yrði hægt að búa til með því.