157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:46]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir ágætisræðu og ég vil taka undir það að þegar við erum að fjalla um samgönguáætlun er margt sem maður myndi vilja gera hraðar og gera fyrr. Manni finnst í rauninni afar sorglegt hvað stjórnvöld á síðustu árum hafa haldið illa á spilunum þegar kemur að innviðafjárfestingum og að við séum komin í þessa stöðu að við erum að forgangsraða í rauninni lífsnauðsynlegum fjárfestingum. Ég tek undir bæði það að það eru ýmsar framkvæmdir þarna sem við fögnum en aðrar sem við myndum gjarnan vilja ýta framar.

Ég hjó eftir einu í málflutningi hv. þingmanns og það kom líka fram í málflutningi hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur fyrr í dag og það eru athugasemdir varðandi það að innheimta veggjöld á nýjum framkvæmdum eins og við Sundabraut og fleiri framkvæmdir. Það var sett í samhengi skattahækkana, að nú ætlaði ný ríkisstjórn að fara í skattahækkanir. Hv. þingmaður talaði um að hann hefði haft væntingar um að veiðigjöldin ættu að leysa öll þessi vandamál og því yrði ekki farið í nýjar skattahækkanir. Það er svolítið tönnlast á þessu orði, skattahækkanir. Nú vill svo til að hv. þingmaður og reyndar hv. þm. Nanna Margrét Guðjónsdóttir einnig eru meðflutningsmenn á máli sem snýr að því að stofna innviðafélagið Þjóðbraut. Þar er gengið talsvert lengra í innheimtu veggjalda heldur en gert er í þessari samgönguáætlun og hreinlega kallað eftir því að farið verði að innheimta veggjöld í öllum núverandi jarðgöngum á Íslandi. Hv. þm. Jens Garðar Helgason, sem er flutningsmaður þessa máls sem þingmennirnir eru á, talaði um það hér í ræðustól áðan að þetta ætti að hefjast sem fyrst og á öllum stofnbrautum líka þannig að flutningsmenn þessa máls eru að kalla eftir því, samkvæmt þeirra skilningi, að það verði farið í skattahækkanir á allar stofnbrautir, öll göng sem búið er að byggja, ekki bara nýjar framkvæmdir.

Mig langaði að spyrja hv. þingmann: Er það svo að hv. þingmaður styðji þá leið eða ætlar hv. þingmaður að draga sig úr meðflutningi á þessu máli?