157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:52]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinni spurninguna en ætla ekki að gera honum það til geðs að hann fái óátalið að láta gamminn geisa um eitt mál, spyrji svo um eitthvað allt annað og svari hvorugu. Þegar verið er að tala um að taka gjald af umferð og að þeir borgi sem noti, allir þessir frasar, er ósanngjarnt að ætlast til þess að allt sé gert í einu. Um það snerist þessi orðræða að stóru leyti í desember og það veit hv. þingmaður mætavel. Það er allt í lagi að greiða fyrir aðgang að nýframkvæmdum, brú, göngum eða einhverju slíku. Þú bætir hins vegar ekki ofan á það hækkun vörugjalda, kílómetragjaldi og bifreiðagjaldinu sem er í dag eiginlega fasteignaskattur og í hrópandi ósamræmi við hugmyndafræðina um að þeir borgi sem noti. Ef þú átt bíl, hv. þingmaður, sparibíl, fornbíl eða einhvern bíl sem þú notar ekki neitt þá borgar þú samt fullt bifreiðagjald. Reyndar ekki af fornbílum, fyrirgefðu, ég hefði getað tekið betra dæmi. Bifreiðagjaldið er hins vegar í raun og veru fasteignaskattur.

Varðandi það að vera bundin af ákvörðunum fyrri ráðherra þá er það auðvitað núverandi ráðherra sem býr til þessa orðræðu sem núna er í gangi. Ég ber ekki saman, hv. þingmaður, (Forseti hringir.) einhverjar hugmyndir um árið 2040 og eitthvað sem allir þingmenn (Forseti hringir.) kjördæmis eru búnir að skrifa undir kjörtímabil eftir kjörtímabil, þar sem búið er að fullhanna (Forseti hringir.) framkvæmdina og hún er tilbúin til útboðs. Ég nefni t.d. Öxi í þessu samhengi. Þetta á ekkert skylt við einhverjar útópískar hugmyndir.

(Forseti (EÁs): Forseti minnir á að ræðutími er ein mínúta í síðara andsvari.)