157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:53]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir ljómandi ræðu. Hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu svo eftir var tekið að þessi samgönguáætlun er ansi afturþung, við getum orðað það þannig. Ég velti því fyrir mér að nú hefur orðatiltækið að ræsa vélarnar verið ansi mikið notað en ef áætlunin er rýnd — við sem höfum unnið á vélum í gegnum tíðina, eins og hv. þingmaður og sá sem hér stendur, við þekkjum þetta mætavel, og ef við tökum þetta saman í ákveðna myndlíkingu þá verður á þessu kjörtímabili fyrst og fremst farið í það að setja olíu á vélarnar og á næsta kjörtímabili verður kannski sett í gang. En eins og hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu þá veltum við því fyrir okkur: Er það orðið þannig með allt sem gerist á næsta kjörtímabili að það þurfi bara ekkert að spá í hvað var búið að leggja fram, eins og í fyrri samgönguáætlun sem allir þingmenn sem hér voru á þeim tíma samþykktu og stóðu með? Við erum með t.d. klára framkvæmd sem er tilbúin til útboðs, ég nefni Fjarðarheiðargöng. Við getum líka horft á önnur göng. Í því samhengi, er það þannig með það sem er verið að leggja upp með hér að við þurfum ekkert að horfa á það sem er verið að gera í áætlun sem á að gilda til margra ára? Það er nákvæmlega þannig sem ég skildi hv. þingmann (Forseti hringir.) og sömuleiðis eins og ég reyni að skilja hæstv. ráðherra.