samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir prýðilegar spurningar og vangaveltur. Það er ágætt að ég byrji bara þar þar sem hv. þingmaður byrjaði líka, það eru þessir orðaleikir sem eru farnir að bíta ríkisstjórnina hraustlega í hælana. Talandi um að ræsa vélarnar þá var ég á fjölmennum fundi austur á Egilsstöðum á föstudagskvöldið síðasta og eitt af því sem eðli málsins samkvæmt var mikið rætt var samgönguáætlun, enda vonbrigði fólksins fyrir austan gífurleg. Þar var fólkið alveg ófeimið við að gefa þessari framkvæmd nýtt nafn: Drepum á vélunum. Það var það sem var notað fyrir austan. Þessi nýja ríkisstjórn er ekki að ræsa vélarnar, hún er að drepa á vélunum fyrir austan. Þannig að þessari orsakaröð sem hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson fór yfir myndi ég vilja skipta með öðrum hætti en hv. þingmaður. Ég myndi vilja segja: Fyrst drap hún á, hæstv. ríkisstjórn. Á næsta tímabili ætlar hún að setja olíuna á. Síðan ætlar hún að setja í gang og það er þá eftir 2030. En af stað fer hún varla að neinu gagni fyrr en fer að halla undir 2040. Það er sú mynd sem er teiknuð upp í þessari samgönguáætlun. (GÞÞ: Farin frá. )Hún verður farin frá, kallar hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson. Ég treysti mér ekki í þá spádóma en gagnvart samgönguáætlun og gagnvart fólkinu á Norður- og Austurlandi væri það vissulega kostur.