157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:58]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Nú vill þannig til að við hv. þingmaður erum þingmenn Norðausturkjördæmis. Fljótt á litið virðist það sem er að fara af stað á næstu árum vera þetta blessaða hringtorg á Egilsstöðum, það er áframhaldandi verkefni sem snýr að Bárðardalsvegi, það eru hins vegar einungis 3 km og þá eru eftir 40. Bárðardalsvegur vestari hefur verið á áætlun í mjög mörg ár, ég held frá árinu 2020, nú er því enn og aftur ýtt aftur. Svona mætti lengi telja. Og talandi um að laga hér malarvegi vítt og breitt um landið; það virðist (Forseti hringir.) algerlega vera hlaupið yfir það þegar kemur að Norðausturkjördæmi. Er hv. þingmaður sammála mér í því?