samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Já, ég er sammála hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni hvað varðar það hvernig Norðausturkjördæmi er leikið í þessari samgönguáætlun og gildir þá einu hvort við erum að tala um göng, brýr, malarvegi eða hvaðeina. Þetta er allt á sömu bókina lært, því miður. Því miður virðist Norðausturkjördæmi hafa verið það sem sett var undir hnífinn. Hv. þingmaður talar líka hér um Bárðardalsveg vestari. Sú svikasaga er orðin löng. Núna hyggst ráðherra setja örfáar milljónir í verkefnið til að geta hakað í boxið og sagt: Við erum að fara í Bárðardalsveg í Bárðardal vestanmegin. Þetta eru smáaurar og, eins og hv. þingmaður vék að, einungis um 3 km. En þetta er hins vegar ekki eini kaflinn, langt í frá, í Norðausturkjördæmi og ekki einu sinni í þessari sýslu þar sem menn eru enn að keyra það sem mætti kalla með þokkalegri samvisku sæmilega reiðvegi en eru núna farnir að borga mun meira fyrir það, (Forseti hringir.) hvort sem það heita vörugjöld, kílómetragjöld eða hvaðeina annað. Áfram skal haldið í því að skattleggja menn sem hafa þó varla aðgang að vegum.