samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar sem eru allar góðar. Mér finnst hv. þingmenn hafa farið ágætlega yfir mjög margt sem snýr að þessu hefðbundna blaðamannaútspili um fulla fjármögnun. Ég nenni ekki að eltast við þetta þrugl í þessari ríkisstjórn. Það sem ég vildi hins vegar ræða og það sem hv. þingmaður spurði sérstaklega um varðar Sundabrautina og göngin. Ég komst ekki almennilega í það en það sem mér finnst vera kjarni málsins er þetta: Þessi tenging er algjört forgangsmál og ég vil vekja athygli á því sem ég kom ekki að áðan, að fólk mun deyja vegna þess að það kemst ekki á Landspítalann. Eftir að ákveðið var að hafa Landspítalann þar sem hann er hefur þetta alltaf verið forgangsmál. Þetta tengist því alltaf að bæta umferðarrýmd. Ef þú þarft að fara á spítala ert þú oft mjög illa haldinn og ekki alltaf á sjúkrabíl. Það er alveg ljóst að fólk mun ekki komast til eða frá. Reyndar tel ég að það þurfi ekki bara Sundatenginguna heldur líka Skerjatengingu, braut eða göng frá Álftanesi. Vandinn við þessa leið sem menn ætla að fara núna, sem menn hafa ekkert uppfært þrátt fyrir ábendingar þar um varðandi Sundabraut eða Sundagöng, er að hún mun ekki leysa þann vanda sem við erum að vonast til að hún leysi. Hún þarf þar af leiðandi að vera vestar, fyrir utan að það mun valda fólki í Reykjavík sem býr á ákveðnum svæðum, hvort sem það er í Laugardalnum eða í Grafarvoginum, mikilli lífskjararýrnun ef menn ætla að setja hraðbrautina inn þar sem menn ætla. Göngin eru skárri leið en það hefði þurft að skoða. Það eru svo sem allir sammála um að hægt sé að hafa Sundagöngin vestar. Ég er búinn að vekja athygli á þessu í mörg ár (Forseti hringir.) en síðan þegar menn vekja athygli á hinu augljósa núna, sem er ekki bara ég heldur íbúar í þessum hverfum, þá er sagt: Ertu að tefja? Ég er ekki að tefja. Þetta er forgangsmál. Hv. þingmaður spurði: (Forseti hringir.) Hvenær verður þetta? Guð einn veit það vegna þess hversu illa er á þessu haldið.