157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:16]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir svörin. Þetta er raunar alveg með ólíkindum, þessar áætlanir ríkjandi valdhafa í þessu landi. Mig langar að spyrja þingmanninn, vegna þess að þessi samgönguáætlun var ekki sett inn í samráðsgáttina í aðdraganda þess að hún var lögð fram: Finnst þingmanninum ekki eðlilegt, miðað við hvað þetta er viðamikið plagg og hversu rík þörf er á víðtækri umræðu í samfélaginu — og við vitum að við munum fá fjölmargar umsagnir — að umsagnartíminn verði lengri en ella til þess að við getum unnið þetta eins vel og hægt er miðað við þann þrönga tímaramma sem við þó höfum?