157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða spurningu. Aðeins af því að hv. þingmaður spurði mikið um mína ríkisstjórn þá hefur afstaða mín alltaf legið fyrir. Hún var skýr öllum í ríkisstjórninni og öllum í þingflokknum og reyndar öllum almenningi vegna þess að ég var ekkert að liggja á mínum skoðunum. Í fyrsta lagi: Þetta er munaðarlaust. Það á þetta enginn og einhvern veginn ber enginn ábyrgð á þessu. Það er stórhættulegt, alveg sama hvaða skoðun fólk hefur, að vinna þetta með þessum hætti og fá ekki alvöruumræðu um þetta. Það er stórhættulegt. Mín skoðun er sú að mikilvægasta samgöngubótin sé ótímasett og aftast. Það eru göng undir Miklubrautina. Ég vek athygli á því að ég var heilbrigðisráðherra, ég þekki þessi mál bara alveg prýðilega. Fólk mun deyja. Fólk mun deyja ef við bætum ekki samgöngur að Landspítalanum. Ég er búinn að fá kynningu á þessum hugmyndum um borgarlínuna. Þar finnst mér meira um spurningar en svör. Það sem ég hef áhyggjur af — ég get alveg skilið forystumenn í öðrum sveitarfélögum en Reykjavík af því að þau eru að fá mjög mikið úr þessum sáttmála — er að í Reykjavík er hugmyndafræðin sú að neyða fólk til að fara inn í borgarlínu og allt fyrirkomulagið mun hafa áhrif á alla og tekur mið af því. Ég segi ykkur bara: Ef menn ætla að klára Sundabrautina eins og á að gera að öllu óbreyttu í samgöngusáttmálanum þá verður umferðaröngþveiti þegar fólk kemur inn í borgina. Svo einfalt er það. Þú munt aldrei neyða fólk upp í þessa borgarlínu. Fólk mun ekkert fara brosandi í borgarlínuna, það mun fara brosandi í önnur sveitarfélög. Keldnahverfið, sem er dýrasta hverfið áður en byrjað er á því, það er búið að kosta hundruð milljóna að hanna það (Forseti hringir.) — það verður aldrei að því sem það á að vera.