157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:24]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem er gott, held ég, er að það er samstaða um forgangsakreinar. Munu sjúkrabílar geta notað þær? Já, það eru bara fleiri sem koma að spítalanum en sjúkrabílar. Þú getur bara, hv. þingmaður, og ég vona að svo verði ekki, lent í því að keyra einhvern sem er þér mjög náinn á spítalann. Þetta eru ekki bara sjúkrabílar. Það verður að flytja atvinnusvæði og þjónustu inn í hverfi borgarinnar og líka inn í önnur hverfi og þjónustukjarna annars staðar en hér vestur í borginni. Það er partur af þessu. Ef menn ætla að ná þessum markmiðum sem þeir hafa aldrei náð og ekkert bendir til að þeir nái, að auka hlutdeild almenningssamgangna með þessum ótrúlega dýra hætti, þurfa þeir að sýna fram á að eitthvað sé að gerast í því sem vekur vonir um að svo verði. Þessi leið, að hefta för fólks, (Forseti hringir.) fara í rándýrar framkvæmdir og auka ekki umferðarrýmd mun aldrei ganga upp. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góðar fyrirspurnir en það er fráleitt (Forseti hringir.) að við séum að ræða þetta hérna á nokkrum mínútum, hundruð milljarða fjárfestingar.