samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég kem hér í ræðu til að bregðast við athugasemdum hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar varðandi samgöngusáttmálann. Hann felur í sér sameiginlega framtíðarsýn um markmið ríkis og sveitarfélaga, auk sameiginlegra verkefna og fjárfestingaráætlunar sem er afrakstur undirbúnings allra aðila, ítarlegra samræmingaráætlana ríkis og sveitarfélaga. Hann er afrakstur samningaviðræðna þriggja ráðuneyta og sex sveitarfélaga. Hann inniheldur stóra verkefnalista. Sérstakt félag, Betri samgöngur, í eigu ríkis og sveitarfélaga var stofnað árið 2020. Varðandi fjármögnunina þá greiðir ríkið 87,5% af stofnkostnaði við verkefni samgöngusáttmálans en sveitarfélögin 2,5%. Ríkið greiðir sinn hluta með beinum framlögum á samgönguáætlun og ábatanum af sölu byggingarréttar á Keldnalandi og með annarri fjármögnun ríkisins. Við erum að tala um að fjármögnun verkefna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins er mjög frábrugðin fjármögnun verkefna á samgönguáætlun, allt öðruvísi, allt öðruvísi fjármögnun og frá því var gengið af síðustu ríkisstjórn.
Mig langar að spyrja hv. þingmann að því hver hafði aðgang að samgöngusáttmálanum. Hver sat í ríkisstjórn þegar þessum sáttmála var komið á laggirnar? Var það ekki hv. þingmaður? Ég veit ekki betur. Ég vil líka koma því á framfæri að það er ekki tímabært að fara í sérstaka umræðu um Sundabraut á þessum tímapunkti. Kynningarferli umhverfisskýrslu fyrir Sundabraut lauk 30. nóvember sl. Það bárust 113 umsagnir í skipulagsgátt og nokkrar síðar. Vegagerðin er að fara yfir umsagnirnar, mun senda Skipulagsstofnun athugasemdir fljótlega og gert er ráð fyrir að álit Skipulagsstofnunar um umhverfismatsskýrsluna liggi fyrir í febrúar eða mars. Í kjölfarið verður lögð fram breyting á aðalskipulagi og þá verður tekin ákvörðun um það hvort Sundabraut verður byggð sem brú eða göng, ekki fyrr. Ég tel að þegar sú ákvörðun liggur fyrir verði góður tími til að fjalla um málið hér á þingi og ég vænti þess að það verði líflegar og skemmtilegar umræður. Það eru kostir og gallar við báðar útfærslur en ákvörðun liggur ekki fyrir.
Vissulega er líka mikilvægt að fjalla um samgöngusáttmálann í samgönguáætlun en við ættum ekki að blanda þessu saman. Samgöngusáttmálinn er allt annars eðlis en samgönguáætlun og framkvæmdir úti á landi. Það er búið að semja um þessar framkvæmdir við sveitarfélögin og það er fjármagnað með þeim hætti sem hér kom fram. Hvort það verða jarðgöng eða brú, það mun liggja fyrir eftir það samráðsferli sem hefur átt sér stað og þegar aðalskipulag kemur fram verður tekin ákvörðun um það. Hv. þingmaður getur að sjálfsögðu haft skoðun á því en ég tel að umræður um samgöngusáttmálann séu gríðarlega mikilvægar ef samningur ríkisins liggur fyrir, og þar kom hv. þingmaður að málinu í fyrri ríkisstjórn.