samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég hefði nú haldið að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson vissi að ég væri sprettharðari en hann og því hefði hann auðvitað þurft að hafa sig allan við að ná hér orðinu. Ég vil þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir að taka þátt í þessari umræðu og að vera svona duglegur að koma hér í pontu. Ég skora á hann að gera það áfram. Mig langar til að nefna við hann það sem ég ræddi einnig hér áðan við hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur varðandi Breiðafjarðarferjuna Baldur. Ekki er að sjá í þessari samgönguáætlun að neitt sé hugað að því að hér verði mögulega smíðuð ný ferja eða alla vega tryggt að ný ferja muni leysa af hólmi þá sem hefur verið í notkun undanfarin ár. Menn vilja meina að hún bili með reglulegum hætti og því sé hún kannski ekki fararskjóti sem við viljum treysta á til lengri tíma. Nú vil ég bara heyra ofan í ráðherra með það hvar hann setti Breiðafjarðarferjuna Baldur í sínar áætlanir.