samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en ég hefði samt vænst þess að hann hefði haft bjartari sýn á það hvenær við fengjum nýjan Baldur. Ég tel nokkuð ljóst að skipið sem þjónustar þarna núna er ekki nægilega öflugt til þess, eða að þess sé skammt að bíða að það verði það ekki, vil ég leyfa mér að segja. Sveitarstjórn Stykkishólms hefur m.a. vakið athygli á því við ráðherra, að ég tel.
Mig langar síðan til að forvitnast um það hjá hæstv. ráðherra hvort hann hafi uppi áform um að hefja að nýju gjaldtöku í þeim göngum sem munu verða inni í hinu svokallaða innviðafélagi. Vil ég þar nefna göng eins og Hvalfjarðargöng og jafnvel göngin á Vestfjörðum. Hvaða áætlanir hefur hæstv. ráðherra varðandi það félag og af hverju er ekki farið að sýna betur á spilin varðandi innviðafélagið en raun ber vitni?