157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:34]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Sá Baldur sem nú er í siglingum er ferjan Rush sem kom frá Noregi haustið 2023, ef ég man það rétt. Varðandi gjaldtöku á standandi mannvirkjum núna, t.d. í Hvalfjarðargöngum, eru engin áform á borði ríkisstjórnarinnar um gjaldtöku á standandi mannvirkjum, þar með talið Hvalfjarðargöngum. Það er allt önnur umræða. Og þó svo að við gerum ráð fyrir að Ölfusárbrú fari inn í innviðafélag ásamt Vaðlaheiðargöngum og Hvalfjarðargöngum þá þýðir það ekki að hafin verði gjaldtaka. Vissulega eru Vaðlaheiðargöng tekjuberandi, þar í gegn er rukkað gjald en ekki af Hvalfjarðargöngum. Að þetta sé að fara í innviðafélag felur ekki sjálfkrafa í sér að farið verði í gjaldtöku. Það má hins vegar veðsetja eign sem er ekki með gjaldtöku og tekjur, alveg eins og einstaklingar veðsetja húsnæði sitt jafnvel þótt þeir leigi það ekki út. Það eru engin áform um það. Það er allt önnur umræða en sú sem varðar innviðafélag og samgönguáætlun.