157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:35]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera hér með okkur og fara áfram yfir þessa mikilvægu áætlun. Mig langar til að beina sjónum að tvennu. Í fyrsta lagi eru það sjóvarnirnar. Við vitum að þegar við erum að tala um aðrar áskoranir sem tengjast náttúruhamförum, þegar við erum að tala um snjóflóð, þegar við erum að tala um jarðskjálfta, þá erum við með náttúruhamfarasjóð. En þegar við erum að tala um sjávarflóðin þá erum við með það hér í samgönguáætlun. Ef við horfum á Suðurnesin sjáum við að það eru að raungerast áskoranir sem gera kröfu um tugi ef ekki hundruð milljóna á næstu árum. Það hefur verið þannig í flóðum að fólk hefur þurft að fara á kajak á milli húsa. Við höfum séð það í Vík í Mýrdal að þjóðvegurinn hefur farið í sundur og það er líka búið að áætla að nýr sandfangari kosti 480 millj. kr. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur aldrei komið til tals eða til greina að stofna sérstakan sjóð um sjóvarnir eða færa þær hreinlega undir náttúruhamfarasjóð til að einfalda mögulega þessa áherslu sem er svo mikilvæg?