samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er rétt sem kemur fram að sjóvarnir eru gríðarlega mikilvægar og mikilvægi þeirra mun örugglega aukast í framtíðinni vegna loftslagsbreytinga. Við erum t.d. að tala um svæði eins og Vík. Á dögunum var mikið brim eða stórstreymt og þá var örstutt í að sjór gengi upp á þjóðveg 1. Í Sandgerði er líka þörf á sjóvörnum og einnig á Akranesi og á fleiri stöðum á landinu. Við erum með það í skoðun í ráðuneytinu — ég hef líka óskað eftir að sá möguleiki verði skoðaður, og þá er það samtal við umhverfisráðuneytið — að sjóvarnir geti líka fengið fjármagn úr náttúruhamfarasjóði. Þetta eru að sjálfsögðu náttúruhamfarir. Það er verið að skoða það sérstaklega og það á bara eftir að koma niðurstaða úr þeirri skoðun. Ég held að það sé líka mikilvægt að styrkja skipulagshlutann. Þegar Vegagerðin gerir athugasemdir við byggð eða skipulag byggðar þar sem hætta er, þar sem sjóvarnir þurfa að vera sterkar, þarf að taka meira tillit til athugasemda hennar og annarra stofnana á skipulagsstigi; það þarf að styrkja aðkomu þeirra að þeirri vinnu.