samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og sömuleiðis hvetja hann til dáða í þessu máli því að það er dýrt að gera ekki neitt. Það er dýrt að takast á við það ef þjóðvegurinn fer í sundur eða ef innviðir verða fyrir skemmdum. Það er betra að við séum á undan slíkum áskorunum.
Mig langar í annan stað að beina sjónum að Suðausturlandinu sérstaklega. Ég verð að viðurkenna að ég hef áhyggjur af því að Jökulsá á Breiðamerkursandi, sem er tifandi tímasprengja út frá landrofi og út frá þeirri umferð sem fer þar um, sé svona seint á dagskrá. Ég hef líka áhyggjur af því að ekki er horft á mikilvægar framkvæmdir eins og færslu þjóðvegarins í Öræfum sem tekur einmitt á þeirri áskorun sem ég var svo ánægð að heyra hæstv. ráðherra tala um hér í dag, þ.e. að eyða þeim áskorunum sem tengjast einbreiðu brúnum, yfir Skaftafellsá, Svínadalsá, Virkisá og Kotá. Telur hæstv. ráðherra ekki þörf á því að gefa meira í hvað varðar Suðausturlandið í ljósi þess hversu mikilvægt það svæði er (Forseti hringir.) fyrir ferðaþjónustu, fyrir vöruflutninga og fyrir íbúa að sjálfsögðu.