157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:39]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Bara aðeins varðandi sjóvarnirnar: Það eru sérstök lög um sjóvarnir, nr. 28/1997, þ.e. varnir gegn sjávarflóðum og landbroti af völdum ágangs sjávar. Það eru byggð svæði og svæði þar sem dýrmæt mannvirki eru til staðar og menningarminjar sem skulu að jafnaði njóta forgangs. Það er þessi forgangur sem skiptir öllu máli og sjóvarnir ná ekki til svæða sem á kannski að byggja í framtíðinni; það er mjög mikilvægt að það séu byggð svæði svo að það liggi fyrir.

Varðandi Suðausturlandið þá er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægt að útrýma einbreiðum brúm á landinu og við stefnum að því að gera það á hringveginum fyrir árið 2040, á næstu 15 árum. Varðandi Suðausturlandið sérstaklega þá snýst þetta allt um fjármagn og sú forgangsröðun sem við erum með hvað varðar einbreiðar brýr byggist á umferðarmagni og líka á hættumati, í hvað eigi að forgangsraða peningunum. Ég treysti því þeirri forgangsröðun sem Vegagerðin hefur verið með en þetta snýst allt um aukið fjármagn. Á Suðausturlandi er Suðurfjarðavegur, frá Fáskrúðsfirði til Djúpavogs, áhugavert svæði; það er mikilvægur vegur, sérstaklega milli Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Ég vona að við getum kannski flýtt því verkefni í framtíðinni, það væri þá viðhaldspeningur sem kæmi þar inn.