157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:43]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Maður þarf að skilja hver gagnrýnin er. Ég er alltaf tilbúinn að ræða samgöngumál hér í þinginu. Ég er tilbúinn að taka sérstaka umræðu um þau. Ég var einfaldlega að benda á að ekki væri búið að taka ákvörðun um það hvort það eigi að vera jarðgöng eða brú. Eigum við að fara í umræðu um það í þingsal núna hvort það eigi að vera jarðgöng eða brú? Þá er það sjálfstætt álitaefni. Ég hef lýst því yfir við hv. þingmann hér á göngunum að ég sé tilbúinn í umræðu um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem eru gríðarlega mikilvægar. Það sem ég var einfaldlega að benda á áðan er að á höfuðborgarsvæðinu er sérstakur samgöngusáttmáli í gildi milli þriggja ráðuneyta og sex sveitarfélaga. Það er t.d. ekki samgöngusáttmáli á Vestfjörðum, ég hef talað gegn því. Ég hef verið spurður að því af Innviðafélagi Vestfjarða hvort ég sé fylgjandi samgöngusáttmála á Vestfjörðum. Ég hef sagt nei og ég hef útskýrt það. Það er vegna þess að úti á landi, í hinum dreifðu byggðum, er lagður vegur og það er ekki tenging við sveitarfélagavegi. Ég hef hins vegar líka sagt að skrifað hafi verið undir þennan samgöngusáttmála þegar hv. þingmaður var í ríkisstjórn og það er samningur sem ríkið er skuldbundið til að standa við. Ég er alltaf tilbúinn að taka sérstakar umræður um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu en ég stjórna hins vegar ekki dagskrá þingsins.