157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:46]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi samgöngusáttmálann þá er sérstakt fyrirtæki undir fjármálaráðuneytinu sem sér um framkvæmdir samkvæmt samgöngusáttmálanum. (Gripið fram í.) — Já, það er sérstakur samningur um það hvaða framkvæmdir eigi að fara í. Við erum með framkvæmdatöflur hér líka sem lúta að vegasamgöngum, hafnarframkvæmdum o.s.frv. sem lúta að samgöngum í landinu. Það er vissulega líka fjallað um samgöngusáttmálann í samgönguáætluninni. Hann er bara annars eðlis, það er grundvallaratriði. Á þingið þá að fara að semja upp á nýtt við sveitarfélögin? Er það það sem á að fara að gera? (Gripið fram í.) — Við getum að sjálfsögðu rætt samgöngusáttmálann alla daga, hvenær sem er, en það er búið að ganga frá því í samningum milli ríkis og sex sveitarfélaga í landinu. Ég get ekki séð það fyrir mér nema þingið ætli að rifta samningum og byrja upp á nýtt og segja hvernig framkvæmdatöflur eigi að vera þar og annað slíkt. Við erum með ákveðið format á þessu, þetta er annars eðlis, og að sjálfsögðu er líka fjallað um þetta í samgönguáætlun, í tillögu til samgönguáætlunar.