samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég ætla að færa okkur aðeins út fyrir höfuðborgarsvæðið og til Vestmannaeyja. Þaðan er hæstv. ráðherra ættaður og þar ólst hann upp. Áhugamenn um samgöngur til Vestmannaeyja hafa nýverið stofnað með sér félagsskap, Eyjagöng ehf., til að reyna að ýta við og flýta fyrir því að farið verði í rannsóknir sem gefi einhver svör um hvort mögulegt sé, og hver kostnaðurinn gæti hugsanlega orðið, að gera göng til Vestmannaeyja. Þeir hafa sett þetta af stað og fjármagnað upphafsrannsóknirnar, þ.e. borholur bæði landmegin og Vestmannaeyjamegin; hafa safnað fjármagni til þess. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra um aðkomu ríkisins að þessum rannsóknum sem allir flokkar — frú forseti, allir flokkar hér á Alþingi — hafa lofað Vestmannaeyingum; þ.e. að þetta yrði forgangsmál eftir síðustu kosningar.