samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Mig langar bara að benda á hvar fjallað er um samgöngusáttmálann, það er gert á bls. 104. Í töflu í greinargerð með þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2024–2040 eru tilgreind verkefni samgöngusáttmála á höfuðborgarsvæðinu. Það er ekki í þingsályktunartillögunni sjálfri eins og er hefðbundið samkvæmt samgönguáætlun. Það er líka gert á bls. 24, í töflu 7 um sundurliðun nýframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu. Hún inniheldur ekki verkefni sem eru falin í samgöngusáttmálanum sjálfum. Það þarf bara að lesa sáttmálann sjálfan, þetta er annars eðlis. Ég vísa bara á þessar blaðsíður. Varðandi Miklubrautargöngin bendi ég líka á bls. 104. (Gripið fram í.) — Ég get haft samlestrarstund um þessa blessuðu ...
(Forseti (BHar): Forseti biður um hljóð fyrir ræðumann. )
[Kliður í þingsal]
(Forseti (BHar): Ráðherra hefur orðið. Sá sem stendur í púlti hefur orðið.)
Það sem mig langar að benda á varðandi Vestmannaeyjar, þ.e. hver aðkoma ríkisins verður, þá mun Vegagerðin standa þétt við bakið á félaginu með faglegri ráðgjöf, faglegri aðstoð og sérfræðiþekkingu. Það er aðstoðin. Við fögnum því frumkvæði sem heimamenn sýna með stofnun þróunarfélagsins Eyjaganga ehf. sem ætlar að leiða (Forseti hringir.) og fjármagna nauðsynlegar rannsóknir. Stefnt er að því að hefja boranir á tveimur djúpum rannsóknarholum strax í mars, (Forseti hringir.) annars vegar við Kross og hins vegar í hánni sunnan við Spöngina í Vestmannaeyjum. Við munum svo sannarlega styðja við þetta verkefni (Forseti hringir.) og þá með faglegri aðstoð eða sérfræðiþekkingu. Það er ekki búið að taka neina ákvörðun um það hvort sú aðstoð verður fjárhagslegs eðlis.