samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Eins og ég sagði áðan þá hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um að setja fjármagn í þetta þróunarfélag, Eyjagöng ehf. Við ætlum hins vegar að vera með þessa faglegu ráðgjöf. Vandamálið í samgönguáætlun er þetta: Þetta snýst allt um forgangsröðun. Við erum bundin af ramma fjármálaáætlunar. Ef við ætlum að setja 100 milljónir í rannsóknarborholur í Vestmannaeyjum verðum við að taka peningana annars staðar frá. Ég tel miklu skynsamlegra að setja þann pening frekar í jarðgöng sem eru framar í forgangsröðuninni. Varðandi jarðgöng til Eyja — og það er stórkostleg framkvæmd að öllu leyti, ég tek það fram — þá stöndum við frammi fyrir því, ef niðurstaðan er jákvæð af þessum rannsóknum, að fara í jarðgangaframkvæmd sem kostar hátt í 200 milljarða, 150–200 milljarða. Þetta er ekki efst á listanum. (KGH: Hvað veist þú um það?) Ég er að segja það sem menn áætla og þetta hefur ekki verið efst á lista. 60 milljónir skipta máli í samgönguáætlun, ef við setjum 60 milljónir í þessar rannsóknarborholur erum við að taka peningana annars staðar frá. Þetta snýst allt um forgangsröðun og þetta er sú forgangsröðun sem (Forseti hringir.) kemur fram í tillögunni. Ég veit að það er mikill greiðsluvilji í Vestmannaeyjum að borga fyrir þessi jarðgöng, en það er gríðarlegur kostnaður og það eru mörg önnur jarðgöng (Forseti hringir.) sem eru framar í röðinni, t.d. 5,2 km jarðgöng milli Fljóta og Siglufjarðar og fleiri styttri göng.