Störf þingsins.
Frú forseti. Fyrrverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, var í afar athyglisverðu viðtali í Silfri Ríkisútvarpsins í gærkvöld. Þar minnti hann m.a. á gömul íslensk spakmæli sem vert væri að hafa í huga á þeim óvissutímum sem nú eru uppi. Annað þeirra var: Allt kann sá sem bíða kann. Hitt var: Fæst orð bera minnsta ábyrgð.
Frú forseti. Þessi ummæli fyrrum forseta eru ekki sögð að tilefnislausu í ljósi þess að ýmislegt hefur nýlega verið sagt ógætilega sem betur hefði verið látið ósagt. Bandaríkin eru meðal okkar nánustu vina og bandalagsþjóða. Við eigum varnir landsins undir þeim á grundvelli aðildarinnar að NATO og varnarsamnings okkar við Bandaríkin frá 1951. Ólafur taldi til að mynda ráðlegt að fyrir hvern fund í Brussel ættum við að sækja tvo slíka í Washington. Vitaskuld eru ummæli Trumps um Grænland fráleit en stóru fréttirnar eru þær að Ólafur Ragnar, sem er prófessor og fyrrum forseti og hefur áratugareynslu og víðtæk sambönd, gaf utanríkisstefnu Viðreisnar falleinkunn í gær, frú forseti. Er ekki rétt, frú forseti, að Samfylkingin og Flokkur fólksins taki mið af ofangreindum ráðleggingum fyrrum forseta lýðveldisins?