Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Við ræðum þessa dagana samgönguáætlun og hefur ríkisstjórnin og innviðaráðherra, eins og aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar og meiri hlutinn reyndar allur, ekki sparað stóru orðin af sínu alkunna lítillæti. Þess vegna er ágætt að rifja það upp að ráðherrann sagði hér á síðasta ári að auðvitað vildi hann auka fé til samgöngumála enn frekar og það yrði gert þegar það væri búið að ná tökum á verðbólgunni. Það var í fyrra. Þess vegna er það umhugsunarefni fyrir meiri hlutann og ríkisstjórnina að verðbólgan er að fara yfir 5% að öllum líkindum á næstu mánuðum og fer hækkandi. Með öðrum orðum, fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist, henni hefur mistekist að ná niður verðbólgunni og vöxtunum og væntingar innviðaráðherra um að geta farið að spýta í í samgöngumálum þegar kæmi fram á seinni hluta þessa kjörtímabils eru þar af leiðandi að engu orðnar, af því að það er ekki að fara að gerast að verðbólgan fari niður. Og af hverju fer hún ekki niður? Jú, það er vegna þess að ríkisstjórnin eyddi um efni fram á síðasta ári, í fjárlögum vegna þess árs, 143 milljarða aukning, 9% aukning. Hún sendi út þau skilaboð þegar kom til krónutöluhækkana að það yrði bara hækkað um tæplega 4%, 3,7%. Ég tók viðtal hér bæði við hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra um hvort þetta væri ekki röng leið. Hér væri verið að senda röng skilaboð. Hér væri verið að senda skilaboð til fyrirtækjanna í landinu, til sveitarfélaganna, til Reykjavíkurborgar um að það væri bara allt í lagi að hækka hér allt í botn, Veitur ekki síst, og ganga á undan með því fordæmi að hækka langt, langt umfram þá verðbólgu sem spáð var. Hvað er að koma á daginn á fyrstu vikum þessa árs? Jú, verðbólgan fer hækkandi og fyrirtæki ríkisins ganga á undan með góðu fordæmi og hækka sem og sveitarfélögin, (Forseti hringir.) ekki síst þau sveitarfélög sem Samfylkingin stjórnar. Þetta veit ekki á gott, frú forseti.