157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:49]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig hv. þingmaður ætlaði að klára þessa spurningu en hann spurði um innviðafélagið og væntanlega fáum við að sjá frumvarp hér á þessu vorþingi hvað varðar stofnun þess. Verkefni innviðafélagsins eru greinilega fjölmörg og það er auðvitað mikilvægt að við tökum umræðu um það hvernig sú umgjörð verður í kringum það félag. Það á að sjá um gjaldtökuna, það á að sjá um verkefnin, það á að sjá um ýmsa aðra samninga, það á að laða að fjárfesta, taka lán með sölu skuldabréfa og fleira og fleira, að hluta til með ríkisábyrgð en að hluta til ekki. Ég tek undir með hæstv. hv. þingmanni að þetta er nýr veruleiki og verður auðvitað líka, ég verð nú að segja það, frú forseti, spennandi að sjá hvernig mönnum tekst til í þessu og hvernig verður vandað til verka.