samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans spurningar. Seinni hluti ræðu minnar átti einmitt að fjalla um Vestmannaeyjar að mestu leyti þannig að ég fagna því að fá hér nokkrar sekúndur til að ræða um Vestmannaeyjar. Það er margt þar undir, það er ekki bara ferjan. Það er verið að lækka framlög til ferja á landinu öllu svo verulegu munar. Ég held að það muni, frú forseti, 300 milljónum sem getur einungis komið fram í skerðingu á þjónustu á ferjuleiðum um landið. Það skýtur auðvitað skökku við þegar íbúar í Vestmannaeyjum eru að kalla eftir betri samgöngum, auknum krafti í dýpkun, auknu flugi, rannsóknum á hugsanlegri jarðgangagerð og hugsanlegum lagfæringum í Landeyjahöfn. Og einnig með Herjólf — innan ekki margra ára þarf að endurnýja skipið. (Forseti hringir.) Það eru auðvitað vonbrigði að sjá það í samgönguáætlun að verið sé að draga verulega úr framlögum til samgangna til Vestmannaeyja.