157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:11]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er nefnilega gríðarlega mikilvægt hvernig við skiljum hluti. Ég er bara að benda á það að hér hafa verið notaðir einhverjir orðaleppar; ræsum vélarnar og fullfjármagnað og annað. Það er það sem ég geri athugasemdir við, bæði varðandi stofnun innviðafélagsins og síðan þennan texta hér þar sem er varað við — bara hvaða orðalag er notað út á við, (Gripið fram í.) að þetta sé fullfjármagnað. Það þýðir ekki það. Ég var að benda á t.d. efnahagsástandið núna 2026, það er á niðurleið. Ríkisstjórnin er búin að skattleggja allt mjög langt, það er verið að sjúga kraftinn úr atvinnulífinu. Ég er bara að benda á það. Fólk heldur að þetta sé fullfjármagnað og þetta er látið líta út þannig að það sé bara allt að skila sér á næstu fimm árum sem er í þessari áætlun. Það er það sem er verið að tala um. Ræsum vélarnar. En það hefur bara ekkert verið rætt að hér stendur bara að allar forsendur á bak við eru í fjármálaáætlun hverju sinni og bent á það. Þess vegna er ég að vekja athygli á þessum texta sem hér er (Forseti hringir.) svo þetta skiljist nú einu sinni. Þetta ræddum við líka í gær, með öðrum hætti, um innviðafélag.