samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu og ætlaði einmitt að ræða við hann um flug, þar sem hann er nú þekktur sérfræðingur á því sviði, og akkúrat þennan þátt sem hann kom inn á síðast af því að við þekkjum báðir sögu varaflugvallargjaldsins og mikilvægi þess að það geti staðið undir þeim framkvæmdum sem eru í grunnnetskerfinu, en þjónustusamningurinn aftur á móti sem ríkið hefur gert við Isavia á að sjá um kostnað við allt hitt. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann hvort það sé hans mat að það fjármagn sem er verið að setja til þessara framkvæmda á ýmsum sviðum sé minna. Framkvæmdirnar eru annaðhvort minni í fjárhæðum eða mun seinna á ferðinni miðað við þá samgönguáætlun sem kynnt var 2023 en náðist ekki að klára. Ég hef heyrt ráðherrann margítreka að hún hafi ekki verið fjármögnuð þó að hún hafi líka verið bundin við sama fjármálaáætlunarkerfi og hann segir að sín áætlun sé fjármögnuð með, sem er eiginlega óskiljanlegt. (Forseti hringir.) En mig langaði að heyra aðeins nánar um þjónustusamninginn og varaflugvallargjaldið og hvert peningarnir eru að fara.