157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:29]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Auðvitað er hætt við því og það er það sem við sjáum ef við skoðum samgönguáætlun, ef við skoðum fjármálaáætlun, sem var samþykkt hér í júní í fyrra og ef við skoðum fjárlögin, og ef við sjáum að auki þau óhagstæðu skilyrði sem eru að koma fram núna. Við sjáum hagvöxtinn fara niður. Það er búið að skattleggja hluti. Ytri áhrif munu líka hafa áhrif. Það er bara margt í gangi. Þetta er samt ekkert í líkingu við það sem við höfum séð síðustu ár, árin 2019, 2020, 2021, 2022, 2023 og 2024, þar sem beinn kostnaður ríkissjóðs af áföllunum var um 350 en áætlaður heildarkostnaður upp á 600 milljónir. Það voru 600 milljónir á fimm ára tímabili, 120 milljarðar að meðaltali á ári, í heildarkostnað. Auðvitað hefur þetta gríðarleg áhrif og í samgönguáætluninni er þessi fyrirvari um að taka þurfi tillit til fjármálaáætlunar. Þær forsendur gætu breyst hratt. Við fáum fjármálaáætlun inn í fjárlaganefnd eftir tvo og hálfan mánuð, í lok mars, þá ætti hún að koma inn og þá sjáum við hvernig þetta þróast.