157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:53]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er nefnilega þannig að ekki hefur verið hægt að fjárfesta í Vatnsmýrinni í tengslum við Reykjavíkurflugvöll í áratugi vegna þessarar endalausu óvissu í aðalskipulagi og hvernig tímaramminn hefur verið settur upp. Við sjáum það bara síðustu vikurnar að meiri hlutinn í Reykjavík er enn í þessum sporum. Meira að segja í því kjöri sem á að fara fram á laugardaginn er greinilega gríðarleg óvissa í tali og það er vilji frambjóðenda, meira að segja í Samfylkingunni, að völlurinn fari sem fyrst. Það er ekkert hægt að lesa neitt annað út úr því en það. Þetta hlutverk fyrir innanlandsflugið, fyrir sjúkraflugið — um 1.000 á ári, eða 900 flug, yfir 940 manns í sjúkraflugi, og öll alvarlegustu tilvikin koma inn til Reykjavíkur, F1 og F2. Við erum líka að tala um varaflugvöll og almannaöryggi í landinu, flugvöllurinn er lykilsamgöngumannvirki varðandi þau mál. Það þarf að tala skýrt um það og ég vona að í vinnslu hv. umhverfis- og samgöngunefndar komi eitthvað skýrara orðalag um Reykjavíkurflugvöll til lengri tíma. Það væri sómi að því að það væri alveg á hreinu þegar við samþykkjum þessa þingsályktunartillögu eftir síðari umræðu.