samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir seinna andsvar. Nei, maður hefur ýmislegt heyrt en það væri skrýtið að fara með einhverjar pælingar sem maður hefur heyrt úti í bæ í pontu Alþingis, þannig að ég held að maður láti það nú vera. Hvort það sé verið að tala um stofnanir ríkisins sem flokkar hægra megin í lífinu hafa verið að tala um að selja yfirhöfuð, hvort þær fari þarna inn, eða hreinlega bara innviðina sjálfa, hvort þarna muni vera einhver göng, Vaðlaheiðargöng eða eitthvað því um líkt, hvort það sé að fara inn í þetta. Þetta er bara ein af þessum spurningum sem hefur ekki enn þá verið svarað. En í grunninn er ég því miður ekki með svar fyrir hv. þingmann. Ég hef ekki hugmynd um hvað er að fara inn í eina af þessum fjórum tekjustoðum sem er innviðafélagið. Ég hlakka til að sjá það. En ég segi bara aftur að það er svolítið skrýtið að vera að ræða þessa grunnstoð samgönguáætlunar án þess að hafa frekari svör.