samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég átta mig ekki alveg á því sjálf hvert þau eru að fara. Hins vegar erum við sjálf með dæmi um Hvalfjarðargöngin sem var algjörlega frábær framkvæmd; heppnaðist vel, tókst vel og staðið var við það sem lofað var, að þegar væri búið að borga göngin þá myndum við keyra frítt í gegnum þau og eðlilegt viðhald færi fram í gegnum aðrar skattgreiðslur. Ég vona að við séum að fara að horfa fram á fleiri svona vel lukkuð verkefni. En þetta er nefnilega vandamálið: Við vitum ekkert um hvernig á að fjármagna þetta innviðafélag. Ríkisábyrgð í Færeyjum er, held ég, meira á einstaka verkefnum. Ætlum við að hafa ríkisábyrgð á þessu félagi? Það kemur ekki fram. Þetta dregur fram að það sé enn fleiri spurningum ósvarað en ég áttaði mig sjálf á.