157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:00]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir ágætisræðu þar sem henni varð tíðrætt um innviðafélag, forsendur þess og hvernig það ætti að fúnkera. Ég tek undir margt af því sem þar kom fram og gagnrýni á þessar skrautsýningar og yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og meiri hlutans sem ég held að fari ekki bara í taugarnar á okkur mörgum heldur grafi undan trúverðugleika þeirra eigin tals og framsagnar.

Hugmyndafræðin á bak við innviðafélagið er held ég góð. Það sem hv. þingmaður var eiginlega að benda á að ef það væri eingöngu farið í arðbærar framkvæmdir þá kannski þyrfti ekki að setja svo mikið inn í félagið. Ég hef haldið, og það er auðvitað galli að það sé ekki komið fram, að það þurfi að setja bæði eignir inn í það og það þurfi að setja eigið fé inn í það til að geta farið í framkvæmdir, vegna þess að hluti af samgönguáætlun er að fara í samgangnaverkefni sem eru ekki með háa arðsemi, þar sem byggðasjónarmið eru hærri. Nánast öll jarðgöng á Íslandi eru með þeim hætti. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvernig hún myndi vilja sjá uppbyggingu á þessu innviðafélagi vera, af því að ríkisstjórnin er greinilega ekki búin að því. Það er tækifæri til að koma með sérfræðiálit hér inn.