samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Þetta er nefnilega mjög mikilvæg umræða. Samgönguáætlun hlýtur ávallt að samanstanda af verkefnum sem eru arðsöm vegna umferðarmagns og/eða einhverra öryggisþátta. En við vitum að meginþorrinn er það ekki ef við ætlum að byggja upp samgöngur á öllu Íslandi. Við vitum líka að það er gríðarleg þörf á uppbyggingu á samgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Mig langar þess vegna að fara inn á þá braut sem ég veit svo sem að Miðflokkurinn hefur ekki verið mjög hrifinn af. Hugmyndafræðin á bak við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins var sú að taka þau verkefni út fyrir sviga til þess að samgönguáætlunin gæti síðan dekkað allt landið. Þau verkefni sem þyrftu á stuðningi að halda færu t.d. í gegnum innviðafélög sem væri greitt af annars vegar með því að ríkið setti inn eignir, fjármuni, inn í félagið og síðan væri kannski sett á samgönguáætlun, segjum bara til jarðgangadeildarinnar, 2 eða 3 milljarðar á hverju ári um tiltekinn tíma. En hugmyndafræðin var sú að það yrði rukkað fyrir notkunargjöld, bæði í þessu innviðafélagi sem og á höfuðborgarsvæðinu. (Forseti hringir.)
Nú sýnist mér ríkisstjórnin vera að færa sig frá því og ætla að borga það í topp úr samgönguáætlun en ætla að halda sig við það að rukka fólk úti á landi. (Forseti hringir.) Hvað finnst þingmanninum um það? Ég afsaka að hafa farið örlítið fram úr tímastjórnun forseta.
(Forseti (BergÓ): Það er fyrirgefið.)