samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þetta fer nú að verða ásókn í að vera hér í ræðustólnum og forseti, að vísu ekki sá sem nú situr í forsetastól, stjórnar því. Virðulegur forseti, ég greindi svo sem ekki neina sérstaka spurningu hjá hv. þingmanni en vissulega er það þannig að öll höfum við skoðun á því hvernig samgönguáætlun á að líta út. Öll höfum við skoðun á því hvernig við ráðstöfum fjármunum og síðan tökumst við bara á um það. En ég veit, ég hef heyrt það frá nefndarmönnum í umhverfis- og samgöngunefnd, að þar er gott samstarf og þar leggjast menn á eitt við að ná fram niðurstöðu. Það er það sem er svo fallegt við það, jú, við komum öll héðan og þaðan, úr ólíkum áttum og með ólíkar skoðanir en þegar kemur að þessum hluta þá virðast menn yfirleitt ná saman um að reyna að gera vel og þá eru menn að starfa fyrir allt landið en ekki bara fyrir hið stórkostlega kjördæmi, Norðausturkjördæmi.