157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:40]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans góðu ræðu. Ég vil halda áfram að tala um hið stórkostlega kjördæmi Norðausturkjördæmi. Í samgönguáætlun er talað um að lögð sé áhersla á umferðaröryggi og verðmætasköpun. Mig langar að spyrja hv. þm. Þórarin Inga Pétursson hvort hann telji að það þjóni verðmætasköpun og uppbyggingu verðmætasköpunar í kjördæminu að hafa alla þessa flöskuhálsa og setja þá aftast og allar þessar einbreiðu brýr sem eru bæði á sunnanverðum Austfjörðum og síðan brúin yfir Jökulsá á fjöllum og fleiri brýr með þungatakmörkunum og hvort hann telji að það þjóni hlutverki í umferðaröryggi að setja vegi eins og Suðurfjarðaveg, sem hefur verið talinn einn hættulegasti vegkafli landsins, aftast, langaftast, og fleiri umferðarkafla og brýr sem er ekki verið að horfa til nema þá aftast í áætluninni. Hvernig finnst hv. þingmanni þetta þjóna markmiðum um (Forseti hringir.) umferðaröryggi og verðmætasköpun? Væru ekki 800 milljónir (Forseti hringir.) sem á að nota í hringtorg betur nýttar í einhver önnur verkefni?