157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:44]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Jú, hv. þingmaður, það er mótsögn í þessu, sérstaklega í ljósi þess þegar við spólum til baka og til umræðu sem við áttum hér í sumar um veiðigjöld, þegar við töluðum um verðmætasköpun og skattlagningu og hverju átti að skila til baka til samfélaganna. Síðan eru skilaboðin þessi: Nú er komið svo að við verðum að breyta hlutföllunum sem snúa að Hafnabótasjóði í 60:40. Jú, vissulega er það þannig að hafnir í Norðausturkjördæmi eru misjafnlega vel staddar. Ég veit það alveg að hafnir í Fjarðabyggð standa ágætlega. En það eru hafnir í kjördæminu sem standa illa, talandi um uppbyggingu á höfninni í Seyðisfirði sem er fyrirhuguð og að breyta því hlutfalli bara sisvona. Þegar við erum að fjalla um verðmætasköpun og samgöngubætur (Forseti hringir.) þá fer ekki saman hljóð og mynd þegar að þessu kemur.