samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Samgönguáætlun er stór hluti af samkeppnishæfni landsins, sérstaklega dreifðari byggða og nú þegar 85% þjóðarinnar búa innan Hvítár-Hvítársvæðisins þá erum við náttúrlega ekki í góðri stöðu bara svona út frá því að nýta landsins gæði og út frá öryggismálum þjóðarinnar, sérstaklega eins og þau hafa þróast á undanförnum árum, þá sjáum við svolítið glitta í þetta og ýmsar hættur. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenska þjóð til lengri tíma og til næstu áratuga að styrkja byggðirnar vítt og breitt um landið og búa til nýja kjarna, líka upp á að vinna á móti einhæfni. Við erum að verða mesta borgríki í heimi. Arðsemi af framkvæmdum — jú, í þessari samgönguáætlun eru nokkrir punktar dregnir fram um val á framkvæmdum og arðsemi er klárlega einn af þeim. Það er minnst aðeins á öryggi. En það þarf að hafa þetta allt saman í huga. Mér er minnisstætt þegar ég áttaði mig á því þegar ég var nýbyrjaður á þingi — náttúrlega var enginn baráttumaður Reykjavíkurflugvallar eða fyrir því að halda gangandi sjúkraflugi sérstaklega og búa um það með sem öflugustum hætti. Þegar ég er hérna í Reykjavík þá bý ég í Vesturbænum, í göngufæri við þingið. Eftir kannski nokkrar vikur áttaði ég mig á því að það væri kannski erfitt að fá skilning fram hjá því fólki sem býr í Vesturbæ Reykjavíkur á mikilvægi sjúkraflugsins. Þetta er ekkert flóknara. Þegar þú býrð í búblunni þar sem þú ert með alla þjónustuna, ert nokkrar mínútur að ganga á Landspítalann eða niður í miðbæ þar sem stjórnsýslan er og stór hluti af opinberum störfum í tíu mínútna göngufæri — fólk sem þar býr er ekkert upptekið af því að hugsa um sjúkraflutninga þar sem hver mínúta telur og þarf að fara langar leiðir. Það eru svona hlutir (Forseti hringir.) sem við þurfum að auka almennt skilning fólks á, bara landsmanna allra, á helstu grunnöryggismálum og samkeppnishæfni landsins og samkeppnishæfni byggða landsins.