157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:29]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningu hér. Ég ætla að taka undir með hv. þingmanni að það er gríðarlegt álag á allt samgöngukerfið í Suðurkjördæmi, ekki bara á hringveginum heldur líka í uppsveitunum. Svo við tökum bara erlenda ferðamenn; hér nefnir hv. þingmaður að 80% erlendra ferðamanna fari um Suðurland og það er rétt. Svo skulum við líka hafa í huga að um helgar fara um 20.000 Íslendingar austur fyrir fjall í sumarbústaðina sína og það þarf að huga að því sömuleiðis.

Ég stend í þeirri meiningu að ráðherra sé að fara að setja af stað rannsóknir við að kanna jarðlög við Vestmannaeyjar og ég vil þakka honum fyrir það. Ég áætla að farið verði í það fljótlega og ég tel það nauðsynlegt. Vestmannaeyingar eru líklega einir af þeim fáu hér á landi sem búa við verulega alvarlegar samgönguskerðingar þar sem flug er takmarkað yfir nokkrar vikur yfir vetrarmánuðina. Oft er það þannig að það eru margir dagar þar sem Vestmannaeyjar eru ekki með neinar samgöngur; það er ekki flug og það er ekki siglt. Ég hef fulla trú á því að ef að rannsóknir sýna jákvæða niðurstöðu hvað jarðlög varðar þá sé þjóðhagslega hagkvæmt að leggja göng til Eyja.

Ég vil líka fá að nefna hér, af því að hv. þingmaður nefnir atvinnulífið, að það þarf að bæta Skógarhlíðarbrekkur í Þrengslum og það er ekki sett á dagskrá fyrr en 2029–2030. (Forseti hringir.) Þorlákshöfn er að verða mikilvægasta höfn okkar Íslendinga og það er orðið gríðarlegt álag á Þrengslaveginn og veldur þar af leiðandi slysahættu. (Forseti hringir.) Við þurfum að horfast í augu við það að þessir miklu þungaflutningar eru að fara í Þorlákshöfn og það verður að bæta veginn og tvöfalda brekkuna.