157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:34]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Mig langar aðeins að fá að nefna áfram rannsóknir um göng til Eyja. Ég geri fastlega ráð fyrir því — og ég ætla að hvetja ráðherrann og þakka honum fyrir það að hafa tekið vel í að fara í rannsóknir á jarðlögum. Í raun, í öllu þessu samhengi, eru þetta ekki miklir peningar. Það er verið að tala um innan við 100 milljónir. Þá fáum við alla vega niðurstöðu í það hvort þetta sé fýsilegt eða ekki og ef það er ekki þá verðum við að hugsa aðrar leiðir til þess að tryggja samgöngur til Vestmannaeyja og við getum þá hætt að hugsa um þetta í bili. En sem betur fer hefur þróunin í jarðgangagerð tekið stórkostlegum framförum frá því að Landeyjahöfn var byggð. Landeyjahöfn hefur valdið mörgum ótrúlegum vonbrigðum vegna þess að við gerðum ráð fyrir því að hún yrði opin allt árið og að öryggi hennar væri meira.

Hv. þingmaður spyr hér um hve raunhæf fjármögnun samgönguáætlunar sé. Ég verð að segja að ríkisstjórnin hefur talað um að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð alveg linnulaust síðustu mánuði. Svo mætir ráðherra hér í salinn í gær og segir: Nei, nei, hún er ekki fullfjármögnuð, það er bara á tíma fjármálaáætlunar. Við vitum að allar forsendur í fjárlagagerðinni, sem við ræddum hér fyrir nokkrum vikum, eru brostnar. Allt tal hér um hallalaus fjárlög strax á næsta ári er hjóm eitt. Ef þessi ríkisstjórn hefði viljað sjá hallalaus fjárlög hefði hún getað verið með hallalaus fjárlög á þessu ári og þá ekki farið í 143 milljarða (Forseti hringir.) útgjaldaauka sem raunin varð. Ég hef áhyggjur af því, svo ég svari spurningunni, (Forseti hringir.) að þessar forsendur geti breyst mjög hratt og þær munu óneitanlega breytast hratt ef ríkisstjórnin nær ekki niður verðbólgu og nær ekki niður vöxtum (Forseti hringir.) og einnig ef efnahagslífið tekur að hökta meira (Forseti hringir.) en nú er raunin.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörkin.)