157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:31]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Borist hefur bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 523, um fjármuni til loftslagsmála, frá Karli Gauta Hjaltasyni. Einnig hefur borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 507, um starfsmannamál háskóla, frá Diljá Mist Einarsdóttur.