157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

ábyrgð ráðherra á málaflokkum ráðuneyta.

[10:34]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir góða fyrirspurn. Ég vil taka það fram að uppbygging hjúkrunarheimila er liður í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og er eitt af mínum helstu áherslumálum. Það verkefni er í miðju ferli og er mikill vilji hjá mér og okkur til að sigla því í höfn hratt og skilmerkilega án rofs. Við viljum ekki stoppa í miðri á, þetta hefur gengið vonum framar og 460 ný rými hafa bæst við á þessu ári. Ég hef talað við félags- og húsnæðismálaráðherra. Við erum náttúrlega samflokka og við erum algerlega að róa í sama bát svo að tekinn sé af allur vafi um það. Þegar spurt er hvort ég ber ábyrgð á málaflokknum eða hæstv. ráðherra Ragnar Þór Ingólfsson þá finnst mér í rauninni með ólíkindum að vera að draga það ítrekað upp þegar raunveruleikinn er einfaldlega sá að við erum að fara að byggja hér 1.507 hjúkrunarrými. Við erum að fara að losa um stíflur á hjúkrunarheimilum þar sem útskriftarvandi hefur verið mikill, bæði á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Okkur gengur mjög vel. Við erum að vinna þetta sem einn maður. Það tekur tíma eins og hv. þingmaður væntanlega veit og flestir þeir sem sitja í þessum sal og gegnt hafa stöðu ráðherra. Það tekur tíma að koma sér inn í málaflokkana. Það tekur tíma til þess að gera alla hluti og nú er ég með eins árs forskot á málefni hjúkrunarheimila með mínum góða ráðuneytisstjóra sem í rauninni hefur stýrt þessu verkefni af miklum skörungsskap með mér í ráðuneyti félags- og húsnæðismála. Það lá algjörlega ljóst fyrir að ég myndi ekki skipta um ráðuneyti með það fyrir augum að fylgja ekki eftir og standa við þær skuldbindingar sem ég gerði við stjórnarmyndunarborðið um að ég skyldi sjá um það og inna það verk af hendi að útrýma biðlistum vegna hjúkrunarrýma. Það liggur því algerlega fyrir. Við munum axla okkar ábyrgð hvernig sem það fer. (Forseti hringir.) Hins vegar er athyglisvert að stjórnarandstaðan (Forseti hringir.) skuli ítrekað koma hér með fötur fullar af grjóti til að reyna að hægja á þeim verkhjólum (Forseti hringir.) sem við erum með til þess að gera betur fyrir fólkið í landinu. Það er til háborinnar skammar.