ábyrgð ráðherra á málaflokkum ráðuneyta.
Virðulegi forseti. Hvers konar svar er þetta, hæstv. ráðherra? Er stjórnarskráin í alvörunni fata full af grjóti? Er í lagi að brjóta stjórnarskrána til að byggja hjúkrunarrými og hjúkrunarheimili? Það er það sem ráðherra kemur hér upp og segir. Ég er nú eiginlega bara í áfalli yfir svari ráðherra. Svo nefnir ráðherra enn einn til viðbótar og það er ráðuneytisstjóri; allt í einu er ráðuneytisstjórinn dreginn hér upp sem mikilvægasti þátttakandinn í þessum málaflokki. Treystir ráðherra ekki hæstv. ráðherra í ráðuneytinu, Ragnari Þór Ingólfssyni? Og hvernig er það eiginlega, af hverju erum við með lög og reglur í landinu fyrst ríkisstjórnin kýs að ganga hér um stjórnarskrána okkar með svo léttúðugum hætti og raunin er? Reglur eru til af ástæðu. Svona molnar undan réttindum okkar og svona molnar undan kerfinu. (Forseti hringir.) Við sjáum það núna á stöðunni í alþjóðamálum (Forseti hringir.) hvernig staðan er, hvernig hefur verið gengið um lög og reglur með (Forseti hringir.) mjög furðulegum hætti. Ég ætla jafnvel að leyfa mér að segja að það er með mjög furðulegum hætti (Forseti hringir.) hvernig ráðherra svarar hér. Ég spyr aftur: Hver ber ábyrgðina á þessum málaflokki?
(Forseti (BHar): Forseti vill minna bæði hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að virða tímamörk.)