157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

ábyrgð ráðherra á málaflokkum ráðuneyta.

[10:39]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og ætla að losa hana undan öllum áföllum, vonandi. Samkvæmt 15. gr. stjórnarskrár skiptir forseti Íslands störfum með ráðherrum, eins og vitað er, og er það gert með forsetaúrskurði samkvæmt tillögu forsætisráðherra. Í eldri lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, var kveðið á um að hvert ráðuneyti skyldi óskipt lagt til eins og sama ráðherra. Með gildistöku laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, var opnað á þann möguleika að tveir ráðherrar skiptu með sér verkefnum í einu og sama ráðuneytinu. Á þessum grundvelli hefur það bæði gerst á undanförnum árum að tveir ráðherrar hafi verið í sama ráðuneyti og að einn og sami ráðherrann hafi farið með stjórnarmálefni í fleiri en einu ráðuneyti. Ræðir þar um framsal valds. Hér er ekki um framsal valds að ræða heldur fer félags- og húsnæðismálaráðherra áfram með stjórnarmálefnið og ráðgjafarskyldu gagnvart mennta- og barnamálaráðherra hvað varðar uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustu fyrir eldra fólk. Mennta- og barnamálaráðherra, ég sjálf, ber hins vegar (Forseti hringir.) pólitíska og lagalega ábyrgð á stjórnarmálefninu. Með þessu fyrirkomulagi er gætt að því að eðlislík (Forseti hringir.) stjórnarmálefni heyri undir sama ráðuneyti, sbr. 2. mgr. 4. gr. stjórnarráðslaganna. (GHaf: Ég á þetta og ég má þetta.)