157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

staða skólakerfisins og áform ráðherra.

[10:40]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég ætla að spyrja hæstv. ráðherra um annað mál og athuga hvort betur gangi að svara því. Þegar hæstv. ráðherra hóf störf sem mennta- og barnamálaráðherra kom hann inn með nokkrum hamagangi að mati margra og tilkynnti áform um verulegar breytingar á lestrarkennslu, einkunnagjöf í grunnskólum, afnám skóla án aðgreiningar, a.m.k. í núverandi mynd, í ljósi þess að slíkt fyrirkomulag hentaði ekki endilega þeim sem þyrftu sérstaka aðstoð varðandi tungumál eða annað og þá hinum jafnvel ekki heldur. Þetta vakti töluvert hörð viðbrögð og margt af því sem hæstv. ráðherra lagði upp með sem forsendur var leiðrétt. Ég ætla að líta fram hjá því að sinni því að margt var gott í markmiðum hæstv. ráðherra eins og hann lýsti þeim. Það er ljóst að það þarf að gera breytingar á lestrarkennslu og einkunnagjöf og skóli án aðgreiningar þarfnast yfirferðar í ljósi stöðu menntakerfisins, grunnskólakerfisins sér ekki hvað síst, og ánægjulegt að hæstv. ráðherra geri sér grein fyrir því.

En ég spyr hæstv. ráðherra: Hyggst hann framkvæma í samræmi við það sem lagt var upp með í upphafi og hvernig hyggst hann ná þessum markmiðum sínum? Eru þetta breytingar sem tengjast uppsögnum í menntamálaráðuneytinu nú nýverið? Tengjast þessar breytingar einnig skipulagsbreytingum í ráðuneytinu? Og loks: Nýtur hæstv. ráðherra stuðnings forystumanna hinna stjórnarflokkanna í þessum áformum sínum? Hefur hæstv. mennta- og barnamálaráðherra stuðning forystumanna hinna stjórnarflokkanna í að framkvæma þær umfangsmiklu breytingar sem boðaðar voru hér í upphafi ferils hæstv. ráðherra í núverandi ráðuneyti?