157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[10:48]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Frú forseti. Mig langar að spyrja hæstv. mennta- og barnamálaráðherra nokkurra spurninga. Nú er ljóst að verðbólgan sem ríkisstjórnin ætlaði að slá niður fyrir einu ári, í aðdraganda kosninga, er síður en svo á undanhaldi og fer hækkandi. Ég veit að hv. þingmaður, sem sagði hér áðan að hann hefði verið hér á þingi í níu ár, hefur oft talað um það og ég man eftir mörgum ræðum um hversu mikilvægt væri að slá verðbólguna hratt og vel niður. Það voru plön uppi og ríkisstjórn var mynduð. Væntanlega var það plan Samfylkingarinnar sem var verið að fylgja eftir á þessu ári, sem endaði þó þannig að eftir hálft ár hætti Seðlabankinn að lækka vexti — með einni undantekningu í nóvember, við munum öll eftir því — og nú stefnir í að verðbólgan fari yfir 5%. Mig minnir að hæstv. ráðherra hafi verið að segja nú um áramótin, og það væri svo frábært, að laun og ekki síður bætur væru að hækka um 5% umfram allar þær frábæru aðgerðir sem ríkisstjórnin hefði farið í á síðasta ári, að eigin mati. En þegar verðbólgan fer að öllum líkindum í 5%, í janúar, febrúar, mars, apríl, maí þá hverfa þessar bætur, þessi 5%. Það sem er verra er að verðtryggð lán heimilanna hækka um tugi milljarða.

Mig langar þess vegna að spyrja hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, einn af oddvitum ríkisstjórnarinnar: Það plan sem ríkisstjórnin hefur fylgt á þessu ári og fór með í gegnum fjárlögin, er það ekki að virka? Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að ná þessum árangri? Ráðherrann lýsti því margoft yfir sem þingmaður að til að mynda væri hægt að strika út þessa tengingu við verðtryggðar skuldir, (Forseti hringir.) þ.e. að það þyrfti ekki að vera með húsnæðisliðinn þar inni, að það væri hægt að gera það á einum degi. (Forseti hringir.) Nú er ríkisstjórnin búin að vera við völd í meira en eitt ár. Ég spyr: Hvert er plan ríkisstjórnarinnar, hvert er plan hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, Ingu Sæland, nú í dag?