157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[10:53]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Lítið var um svörin annað en að ríkisstjórnin sé frábær og sé að gera stórkostlega hluti (mennta- og barnamrh.: Sem hún er.) og að fjárlögin verði hallalaus árið 2027. Ég held að það hjálpi fólki ekki neitt í janúar 2026 og út það ár þar sem verðbólgan er 5% og vextirnir fara ekki niður. Ég held að það hjálpi ekki neitt.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra annarrar spurningar sem oddvita ríkisstjórnarinnar. Hún kom inn á það í sínu svari áðan að það væru viðsjárverðir tímar í alþjóðamálum. Við sjáum núna að forseti Bandaríkjanna og hans stjórn leggur verulega fæð á Evrópusambandið og er með alls konar yfirlýsingar í dag og á morgun og breytast jafnvel á hverjum degi. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, einn af oddvitum ríkisstjórnarinnar: Hver er afstaða ráðherrans til þess að ríkisstjórnin eða Ísland ætti að fara að drífa sig að sækja um aðild að Evrópusambandinu? (Forseti hringir.) Er það skjólið sem hæstv. mennta- og barnamálaráðherra telur í ljósi viðsjárverðra tíma á alþjóðavettvangi — að sé rétti tíminn núna, líka í ljósi kannski fyrri yfirlýsinga hæstv. ráðherra sem þingmanns á síðustu árum?