157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[10:54]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og svarið er skýrt: Nei, hvorki ég né Flokkur fólksins höfum það á okkar stefnu að koma okkur inn í Evrópusambandið. Hins vegar erum við lýðræðislega skipaður flokkur og við teljum að þjóðin eigi að eiga síðasta svarið um það hvort við eigum yfirhöfuð að taka upp þessar margumtöluðu aðildarviðræður. Þannig að svarið er nei, Flokkur fólksins er ekki hlynntur því að við sækjum um aðild að Evrópusambandinu. Við, eins og aðrir, munum greiða atkvæði með eða á móti eftir okkar sannfæringu þegar kemur að því að fá að greiða atkvæði um það hvort við eigum að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið eða ekki. En aftur, hv. þingmaður, svarið er nei.